Ráðgjafi með áherslu á fjárhagslegar áreiðanleikakannanir
DeloitteNordic
Posted: May 11, 2026
Interested in this position?
Create a free account to apply with AI-powered matching
Quick Summary
Með helstu verkefni sem bjúgnar áhuga á fjármál sem langar að vaxa sem ráðgjafi í sterku teymi.
Required Skills
Job Description
Fjármálaráðgjöf Deloitte leitar að metnaðarfullum liðsmanni sem hefur brennandi áhuga á fjármálum sem langar að vaxa sem ráðgjafi í sterku teymi. Við vinnum með viðskiptavinum að fjölbreyttum verkefnum og veitum virðisaukandi þjónustu í hæsta gæðaflokki.
Helstu verkefni:
Við veitum fyrirtækjum, fjárfestingarsjóðum og fjármögnunaraðilum þjónustu og ráðgjöf í tengslum við kaup, sölu og sameiningar fyrirtækja. Í grundvallaratriðum er tilgangur áreiðanleikakönnunar að samræma vitneskju og upplýsingar kaupanda og seljanda félags. Með ítarlegum fjárhagslegum greiningum stuðlar áreiðanleikakönnun að því að takmarka óvissu þannig að hægt sé að fækka verulega fyrirvörum og ábyrgðum í kaupsamningi um viðskiptin.
Verkefnastjóri ber ábyrgð á daglegri stjórnun einstakra verkefna undir handleiðslu reyndra ráðgjafa. Verkefnastjóri sinnir meðal annars greiningarvinnu og skýrsluskrifum, samskiptum við viðskiptavini og þjálfun reynsluminni ráðgjafa.
Bakgrunnur, reynsla og færni
• Meistaragráða á sviði viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði, reikningshalds, fjármála eða skyldra greina
• Góð starfsreynsla í fjármálum, reikningshaldi og/eða endurskoðun
• Greiningarhæfni og hæfni til að setja fram efni á skýran og skilmerkilegan hátt
• Góð þekking á Microsoft Excel og PowerPoint
• Nákvæmni og metnaður til að skila af þér góðu verki
• Forvitni, frumkvæði og lausnamiðað hugarfar
• Geta unnið sjálfstætt en virka vel í teymi enda býrðu yfir samskiptafærni
• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
• Metnaður og áhugi til að læra og þróast í starfi í gegnum krefjandi verkefni á innlendum og alþjóðlegum vettvangi
Starfsþróun þín
• Við upphaf starfs færðu leiðbeinanda sem kemur þér inn í starfið („buddy-kerfi“) 
• Þú færð þjálfun og stuðning frá reyndum sérfræðingum í teyminu þínu 
• Þú verður með reyndan coach sem aðstoðar þig við að þróa þig áfram í starfi 
• Þú lærir af  fjölbreyttum verkefnum sem þú tekur að þér hjá  viðskiptavinum í 
• ólíkum geirum 
• Við styðjum við vöxt þinn með símenntunartækifærum 
Að auki bjóðum við upp á:
• Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat 
• Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf 
• Styrki til foreldra 
• Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks í nýjum höfuðstöðvum á Dalvegi 
• Launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum 
• Starfsfólk ræktar fjölbreytt áhugamál saman þvert á félagið t.d. með hlaupahóp, fótbolta í hádeginu og að nýta leikjaherbergi til skemmtunar og samveru
Við hlökkum til að fá umsóknina þína 
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Grétarsdóttir ([email protected]). Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf í lok sumars 2026. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte,  www.deloitte.is , til og með 25. maí nk. 
Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.