Endurskoðandi framtíðarinnar
DeloitteNordic
Posted: January 23, 2026
Interested in this position?
Create a free account to apply with AI-powered matching
Quick Summary
Deloitte er stærsta ráðgjafar- og endurskoðunarfyrirtæki heims, með um 457.000 starfsmenn í yfir 150 löndum.
Required Skills
Job Description
Deloitte er stærsta ráðgjafar- og endurskoðunarfyrirtæki heims, með um 457.000 starfsmenn í yfir 150 löndum. Hjá Deloitte á Íslandi starfa um 360 starfsmenn, allt sérfræðingar á sínum sviðum, þar á meðal endurskoðun, tækniráðgjöf, fjármálaráðgjöf, áhætturáðgjöf, skatta- og lögfræðiráðgjöf og viðskiptalausnum.
Við leitum að öflugum einstakling sem er að stefna á, hefur nýlokið eða er jafnvel að vinna að M.Acc gráðu og langar að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í alþjóðlegu starfsumhverfi. Við leitum að einstakling sem hugsar í lausnum, getur unnið sjálfstætt, er drífandi og vill hafa áhrif. Sem endurskoðandi framtíðarinnar munt þú starfa í samheldnu teymi undir handleiðslu löggiltra endurskoðenda og öðlast þannig dýrmæta reynslu á sviði endurskoðunar og reikningsskila. 
Helstu verkefni og áherslur: 
• Endurskoðun og reikningsskil 
• Gerð ársreikningar 
• Gerð uppgjöra og skattframtala 
• Annað tilfallandi 
Hæfniskröfur: 
• Áhugi á endurskoðun og reikningsskilum 
• Góð íslensku- og enskukunnáttu í ræðu og riti 
• Greiningarhæfni og góð þekkingu á Excel 
• Reynsla af bókhaldsvinnu eða öðru sem nýtist í starfi er kostur 
• Ert að ljúka eða hefur lokið B.Sc. menntun sem tengist viðskiptafræði, hagfræði eða fjármálum með góðum árangri 
• Stefnir á, ert að vinna að eða hefur jafnvel lokið M.Acc gráðu 
Um teymið
Teymið samanstendur af fjölbreyttum hópi starfsmanna; framtíðar og núverandi reynsluboltum á ólíkum aldri og með alls konar áhugamál. Teymið vinnur náið saman og styður hvort annað til að þroskast og þróast í starfi. Svo höfum við auðvitað gaman af því að fagna saman stórum sem smáum áföngum. 
 
Starfsþróun þín  
Við trúum því að það sé ávallt rými til að læra en þú munt öðlast dýrmæta reynslu á sviði endurskoðunar og reikningsskila. Þú lærir mikið af þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum atvinnugeirum, þú fylgist vel með á þínu fagsviði og við að sama skapi styðjum við þinn vöxt með símenntunartækifærum.  
Að auki bjóðum við upp á:  
• Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat
• Regluleg frammistöðu samtöl 
• Samstarfsfélaga „buddy“ sem kemur þér inn í starfið
• Styrk til verðandi foreldra 
• Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf 
• Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum 
• Aðgang að alþjóðlegu efni Deloitte 
Við hlökkum til að fá umsóknina þína  
Nánari upplýsingar um starfið veitir Heiðar Þór Karlsson, sviðstjóri endurskoðunarsviði, [email protected] og Ásta Þyri Emilsdóttir á mannauðssviði, [email protected]. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf haustið 2026. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, www.deloitte.is, til og með 28.febrúar. Endurnýja þarf eldri umsóknir.  
Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.